Spéspegill Egils

Þekktasti bloggari landsins, Egill Helgason, hefur nú fengið á sig spéspegil í bloggheimum. Í blogginu „Múlasopinn“ eru birtar færslur sem skrifaðar eru í ýktum, nostalgískum, heimsborgaralegum besserwisser-stíl, sem ljóst þykir að eru settar til höfuðs Agli. Þar sagði meðal annars nýlega um hnignun flugferða: „Um borð í flugvélinni var síðan mikil gleði ríkjandi og spenningur meðal farþega, sem hugðust nema framandi lönd. Nokkurs konar landkönnuðastemming - ambiente de Conquistador. Í dag eru þetta ekkert annað en ómerkilegir gripaflutningar.“



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.