Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
16:00 › 21. júní 2012
Alþingismaðurinn og fyrrverandi samgönguráðherrann, Kristján Möller, var skráður stjórnarmaður í hlutafélaginu Vaðlaheiðargöng ehf. á sama tíma og hann samþykkti níu milljarða króna lánveitingu í ríkissjóði til fyrirtækisins. Kristján hafði reynt að segja sig úr stjórninni en gerði það vitlaust. Því vill hægrivefurinn andriki.is kanna hvort hann hafi brotið lög sem banna að þingmaður greiði atkvæði með fjárveitingu til sjálfs sín. Hann var hins vegar fulltrúi ríkisins í stjórn og átti ekki persónulegra hagsmuna að gæta. Því er um tæknilega spillingu að ræða.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013