Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
08:04 › 20. júní 2012
Svavar Halldórsson, eiginmaður forsetaframbjóðandans Þóru Arnórsdóttur, verst nú ásökunum fyrrverandi eiginkonu, tengdamömmu og tengdaömmu. Fyrrverandi eiginkona Svavars birtist í sjónvarpsviðtali við Eirík Jónsson á vefsíðu hans. Samkvæmt heimildum DV hafa þær einnig, í kjölfar forsetaframboðs Þóru, meðal annars krafið hann um greiðslu vegna íbúðar sem hann átti. Hann mun ekki telja sig eiga að borga. Svavar vildi ekki ræða málið í samtali við DV. Í herbúðum Þóru er slúðrað um að málið tengist því að Dögg Pálsdóttir, kosningastjóri Herdísar Þorgeirsdóttur, var skilnaðarlögfræðingur fyrrverandi eiginkonu Svavars.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013