Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
08:00 › 2. júní 2012
Þingmaðurinn Þór Saari og félagar hans í Hreyfingunni reyndu á fimmtudag að fá hina nýstofnuðu fjölmiðlanefnd til þess að stöðva Stöð 2 í tilraun sinni til að sýna kappræður milli Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur. Sömu þingmenn stóðu að þingsályktunartillögu sem tryggja átti frelsi fjölmiðla árið 2010. Tilgangurinn var að „leita leiða til að styrkja tjáningarfrelsi, málfrelsi, upplýsingamiðlun og útgáfufrelsi“. Núna, árið 2012, segir Þór í samtali við smuguna.is, sem er í eigu Vinstri grænna: „Fjölmiðlar hafa ekki lengur sjálfdæmi um hvernig þeir kjósa að haga sínum kynningum“ og vildi „grípa í taumana“.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi