Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
20:00 › 2. júní 2012
Hin undarlega tilviljun varð í miðvikudagsblaði Morgunblaðsins að viðtal við Stefan Füle, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, hvarf út úr sjónvarpsdagskrá blaðsins. Morgunblaðið og ritstjórinn Davíð Oddsson eru þekkt fyrir harðvítuga andstöðu við Evrópusambandið í umfjöllunum og skoðanadálkum og því þótti þetta óheppileg tilviljun. Lesendur Morgunblaðsins fengu því ekki að vita af því að stækkunarstjórinn myndi útskýra sjónarmið ESB í sjónvarpinu. Í staðinn var sagt að á sama tíma væri á dagskránni heimildamyndin Hvað gengur að Grikkjum? sem fjallar um erfiðleika Grikkja innan Evrópusambandsins. Samkvæmt Eyjunni er skýringarnar að finna í óheppilegri tilviljun.

Hemmi Gunn fallinn frá