Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
07:41 › 12. júní 2012
Í Staksteinum var RÚV gagnrýnt fyrir að það „…útvarpaði gagnrýnislaust svívirðingum og stóryrðum, sem þeir, sem fyrir þeim urðu, áttu engan kost á að svara.“ Er þar vísað til útsendinga af mótmælum tugþúsunda Íslendinga gegn ríkisstjórn Geirs Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, og störfum Davíðs Oddssonar í Seðlabankanum. Framvegis hlýtur Sjónvarpið að hunsa umfangsmikil mótmæli almennings. Athyglisverðast er að Staksteinarnir bera titilinn „Samfylkingarstöðin enn á ferð“. Samsæriskenningin er því að RÚV hafi verið misnotað af Samfylkingunni til að styðja við mótmæli gegn ríkisstjórn Samfylkingarinnar.

Hemmi Gunn fallinn frá