Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
11:09 › 1. júní 2012
Jóhannes Jónsson, áður í Bónus en nú í Iceland, er hélaður framan á nýjustu forsíðu tímaritsins Mannlífs undir fyrirsögninni „Frystur af stjórnvöldum“. Í viðtalinu kvartar Jóhannes undan því að allt hafi verið „hirt af“ honum og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, syni hans. Fyrir tæpu ári var annar þjóðþekktur athafnamaður á forsíðu Mannlífs. Það var vatnskóngurinn Jón Ólafsson, rennblautur í jakkafötunum undir fyrirsögninni „Ískaldur“. Nú er þess beðið að Gunnar Þorsteinsson í Krossinum birtist á forsíðu þessa fornfræga tímarits, eftir að hafa verið hrakinn úr Krossinum vegna ásakana um kynferðislega áreitni, negldur á krossinn með síðusár og kórónu: „Krossfestur“.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013