Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
16:30 › 9. maí 2012
Besti vinur þess umdeilda Huang Nubo er Hjörleifur Sveinbjörnsson þýðandi. Ein af samsæriskenningunum um Nubo er sú að leiga hans á Grímsstöðum sé upphaf kínverskrar innrásar og runnið undan rifjum Samfylkingarfólks. Eiginkona Hjörleifs, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, gantast með málið á Facebook og spyr hvort hann sé þessi áhrifamaður í Samfylkingunni. „Ert þú að makka þar, og það með Oddnýju Harðardóttur?“. Hjörleifur var snöggur til svars: „Ég er ekki einu sinni í þessum guðsvolaða flokki!“.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013