Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
20:00 › 31. maí 2012
Ef marka má Morgunblaðið heyrði það til mikilla tíðinda þegar ensk útgáfa skáldsögunnar Váfugl eftir Hall Hallsson kom út í Bretlandi fyrir skömmu.
Umfjöllun um útgáfu þýðingarinnar var næstum því hálf blaðsíða undir fyrirsögninni „Váfuglinn lentur í Bretlandi“. Váfugl Halls fjallar um hræðilegar afleiðingar þess fyrir Ísland ef landið verður hluti af Evrópusambandinu en Morgunblaðið berst einmitt einarðlega gegn sambandinu í skrifum sínum. Nú - loksins - geta Bretar einnig kynnt sér þessa martraðakenndu sýn Halls um dvergríkið í norðri.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi