Skorið á Eskifjörð

Landsbankinn hefur ákveðið að loka útibúi sínu á Eskifirði í niðurskurði þar sem nokkrum öðrum útibúum er lokað auk þess sem um 50 starfsmenn missa vinnuna.

Bankinn hefur nú einnig hætt viðskiptum við stærsta fyrirtækið á Eskifirði, útgerðarfyrirtækið Eskju sem Aðalsteinn Jónsson, Alli ríki, stofnaði og rak. Ekki náðist samkomulag um fjármögnun á lánum fyrirtækisins hjá bankanum og hefur Eskja nú samið við Arion banka um viðskipti. Tengsl Landsbankans og Eskifjarðar hafa því minnkað umtalsvert á síðustu vikum.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.