„Ég sagði nú nei takk“

Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, á það til að vera kotroskinn. Hann upplýsti í Silfri Egils um seinustu helgi að honum hefði verið boðið af mönnum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að taka við efnahagsmálum á Grikklandi og koma á þau skikk. Formaðurinn lýsti því þannig að þetta hefði verið nefnt á göngunum. „Ég sagði nú nei takk,“ sagði hann. Sú var tíðin að Steingrímur vildi sem óbreyttur þingmaður reka Alþjóðagjaldeyrissjóðinn úr landi. Nú er sjóðurinn kominn á stall og vill Steingrím í vinnu.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.