Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
08:02 › 26. maí 2012
Hermt er að ófremdarástand hafi verið í fangelsinu á Litla-Hrani undanfarið vegna ógnana og ofbeldis af hendi Annþórs Karlssonar og Barkar Birgissonar. Þeir tveir eru sagðir hafa haldið fangasamfélaginu í járngreipum óttans án þess að Margrét Frímannsdóttir fangelsisstjóri eða önnur yfirvöld fangelsisins gripu þar inn í. Annþór hefur staðið í skjóli fangelsisstjórans og var lengi vel talinn fyrirmyndarfangi. Eftir að fangi lést í klefa sínum eftir innvortis blæðingar er spurt um rannsókn og ábyrgð yfirvalda fangelsisins á því sem gerðist.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013