Náhirð með Ara

Sá kjarni Sjálfstæðisflokksins sem fylgir Davíð Oddssyni fastast að málum er nú talinn ætla að halla sér að Ara Trausta Guðmundssyni í baráttunni um Bessastaði. Náhirðin svokallaða hefur fram að þessu verið talin vera höll undir Ólaf Ragnar Grímsson forseta sem hefur notið náðar hennar vegna framgöngunnar í Icesave. Nú er komið annað hljóð í strokkinn eins og sjá má af bloggi Björns Bjarnasonar, fyrrverandi ráðherra, sem mærir Ara Trausta. „Hann hefur mótað sér skýra afstöðu til stöðu forsetaembættisins meðal þjóðarinnar og setur hana fram á sannfærandi hátt.“



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.