Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
16:30 › 25. maí 2012
Ástæða þess að sjálfstæðismenn eru nú sumir hverjir að snúa baki við Ólafi Ragnari Grímssyni er sú að menn þykjast vera þess nokkuð vissir að flokkurinn komist í næstu ríkisstjórn sem verði undir forsæti Bjarna Benediktssonar. Sá veruleiki er að renna upp fyrir mönnum að með Ólaf Ragnar á Bessastöðum verður ekki stundarfriður og hann stöðugt á bremsunni með hótanir um þjóðaratkvæði. Menn leita því að frambjóðanda sem líklegur er að verða til friðs.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013