Ríkisstyrkt flopp

Bloggarinn Teitur Atlason bendir á það á heimasíðu sinni að aðsóknin á vef Evrópuvaktarinnar, sem haldið er úti af Birni Bjarnasyni og Styrmi Gunnarssyni, sé afar dræm. Vefurinn hefur þó hlotið milljóna króna styrki frá hinu opinbera til að kynna sjónarmið andstæðinga Evrópusambandsins, líkt og Teitur hefur fjallað um.

Bloggarinn bendir á það að heimsóknir á hverja umfjöllun Evrópuvaktarinnar séu mældar í tugum en ekki hundruðum. Hann segir enn frekar að forvitnilegt væri að reikna út hvað Alþingi Íslendinga „borgi hverjum lesanda“ fyrir að lesa hverja færslu á síðunni þegar ríkisstyrknum er deilt niður á hverja færslu.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.