Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
07:40 › 23. maí 2012
Fréttin um sigmanninn sem féll tugi metra í klettum við eggjatínslu í Stapa í Aðalvík á Hornströndum í vikunni vakti mikla athygli. Um var að ræða Einar Val Kristjánsson, framkvæmdastjóra hjá Hraðfrystihúsinu Gunnvöru og einn af eigendum fyrirtækisins.
Einar Valur hefur stundað eggjatöku um áratugaskeið og þykir mikill eldhugi. Þykir Einar Valur hafa sloppið merkilega vel frá slysinu miðað við aðstæður en hann lenti á syllu um 25 metra yfir sjávarmáli.
Eggjatínsla í þverhníptum björgum hefur verið hluti af lífsviðurværi og sögu íbúa á norðanverðum Vestfjörðum um aldir og halda menn eins og Einar Valur þessum sið við þó komið sé fram á 21. öldina.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi