Davíð snupraður

Lesendur Morgunblaðsins fengu á þriðjudaginn ágætis innsýn inn í þá furðu sem málflutningur Davíðs Oddssonar getur vakið hjá útlendingum. Sendiherra Þýskalands á Íslandi, Herman Sausen, skrifaði grein í blaðið þar sem hann gagnrýndi Davíð fyrir að segja sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, Timo Summa, blanda sér í innanríkismál Íslands með umræðu sinni um sambandið hér á landi. Sagði Davíð að Summa bryti með þessu gegn starfsreglum þeim sem gilda um slíka erlenda sendimenn. Sausen sagði skrif Davíðs í garð Summa vera „fjandsamleg“. Núverandi eigendur Morgunblaðsins keyptu blaðið til að berjast gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið og er Davíð Oddsson helsti varðmaður þeirra hagsmuna. Snuprur Sausens skipta Davíð því væntanlega litlu.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.