Össur áhyggjufullur

Það blæs ekki byrlega fyrir aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Nú eru stjórnarsinnar, hver um annan þveran, að snúast á band með stjórnarandstöðunni um að kosið verði um það í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum. Nú síðast lýsti ráðherrann Svandís Svavarsdóttir því yfir að eðlilegt væri að fara í slíka kosningu. Allt þetta mál mun valda utanríkisráðherranum, Össuri Skarphéðinssyni, miklum áhyggjum en hann hefur lagt mikið undir til að koma Íslandi inn í þjóðabandalagið.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.