Innmúruð rannsókn

Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Moggans, vill að yfirvöld rannsaki framgöngu fjölmiðla árin fyrir hrun. Eflaust eru margir sammála ritstjóranum um ágæti þessa. Sjálfur var hann í innsta hring valdakjarnans sem stjórnaði Íslandi inn í hrunið. Hermt var að fáar ákvarðanir væru teknar í stjórnmálum án þess að Styrmir væri með í ráðum. Fræg tölvupóstsamskipti hans og Jónínu Benediktsdóttur athafnakonu vörpuðu einmitt ljósi á það. Þar kom upp nýyrðið „innmúraður“ í því samhengi að tiltekinn maður væri sauðtryggur Davíð Oddssyni þáverandi leiðtoga til lands og sjávar.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.