Verkalýður og sægreifar

Meðal þeirra sem tekið hafa þátt í áróðursauglýsingum útgerðarmanna gegn veiðigjaldi eru skipstjórar og fulltrúar verkalýðsfélaga. Þannig hafa dúkkað upp forystumenn frá Verkalýðsfélagi Grindavíkur og AFLi á Austurlandi til að lýsa því klökkir að fram undan sé dauði og djöfull. Talið er að þarna sé um að ræða sjálfboðaliðastarf en ekki launaðan leik í auglýsingum. Birtingarmynd þess að alþýðan og sægreifarnir hafa tekið höndum saman undirstrikar þann voða sem er í aðsigi.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.