Eftirspurn eftir Bauhaus

Talið er að hátt í sex þúsund manns hafi mætt á opnun Bauhaus á laugardagsmorgun. Það eru tæplega tvö prósent þjóðarinnar. „Yndislegt, mjög gaman að sjá þennan fjölda. Einn talaði um það úti á plani áðan að þetta væri bara þjóðhátíð,“ sagði framkvæmdastjóri Bauhaus við Stöð 2 og sagði aðsóknina undirstrika þörfina fyrir Bauhaus. Sé stuðningur tæplega tveggja prósenta þjóðarinnar sönnun fyrir virkilegri þörf er ljóst að Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi getur fagnað. Stuðningur við hann er oftar en ekki á svipuðum slóðum.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.