Sératkvæði Ólafs Barkar Þorvaldssonar sýnir vel fram á þær efasemdir um sjálfstæði dómstóla sem geta grafið um sig í samfélaginu vegna pólitískra skipana í embætti hæstaréttardómara. Hæstiréttur er í reynd orðinn pólitísk stofnun þar sem vitað er að einstaka dómarar eins og Ólafur Börkur og Jón Steinar Gunnlaugsson eru markaðir af pólitískum hagsmunum og tengslum við frændann og briddsfélagann í Hádegismóum.
Þannig þykjast kunnugir til dæmis sjá handbragð Jóns Steinars á pólitískum skrifum sem aðrir menn eru skrifaðir fyrir í blaðagreinum, bókum og jafnvel erindum til Hæstaréttar. Þessar efasemdir um heilindi einstakra hæstaréttardómara grafa undan trú almennings á þessum æðsta dómstól landsins. Þetta er arfleifð Davíðs Oddssonar.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Kaldur hrollur
Náhirð með Ara
Ríkisstyrkt flopp
Davíð snupraður
Eldhuginn hjá Gunnvöru
