ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Davíð og frændinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:00 › 20. febrúar 2012

Ólafur Börkur Þorvaldsson, hæstaréttardómari og frændi Davíðs Oddssonar Moggaritstjóra, stóð fyrir sínu í Hæstarétti á föstudaginn þegar hann skilaði sératkvæði í máli Baldurs Guðlaugssonar. Davíð kom Ólafi Berki inn í Hæstarétt með herkjum á sínum tíma. Ólafur Börkur vildi vísa máli Baldurs frá dómi. Sératkvæði Ólafs Barkar var ástæða þess að ekki náðist að kveða upp dóminn á föstudaginn en „frændinn“ var þá ekki búinn að ljúka við það.

Eins og frægt er orðið stöðvaði Davíð Oddsson umfjöllun Morgunblaðsins um rannsóknina á Baldri á sínum tíma þegar hann stakk fréttinni undir stól í vikutíma. Davíð og Baldur eru aldavinir. RÚV skúbbaði svo frétt Moggans sem ritstjórinn ætlaði að reyna að þagga niður.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?