ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Spámaður rannsakaður

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:37 › 13. febrúar 2012

Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og fyrrverandi starfsmaður Björgólfs Thors Björgólfssonar, skrifaði grein í Fréttablaðið um helgina sem nokkuð var rætt um á vefnum.

Í greininni spáir Heiðar Már öðru fjármálahruni á Íslandi árið 2016 ef ríkisstjórn Íslands og seðlabankinn hysja ekki upp um sig buxurnar, meðal annars með minnkandi skattheimtu og afnámi gjaldeyrishafta. Í greininni nær Heiðar Már að höggva til aðila sem honum er sérlega uppsigað við, nefnilega Seðlabanka Íslands.

Seðlabankinn rannsakaði nefnilega gjaldeyrisviðskipti Heiðars Más árið 2010 vegna meintra brota á gjaldeyrishaftalögum. Þessi rannsókn átti meðal annars þátt í því að seðlabankinn vildi ekki selja tryggingafélagið Sjóvá til Heiðars og viðskiptafélaga hans. Seðlabankinn vísaði síðar nokkrum málum sem snérust um brot á gjaldeyrishaftalögum til sérstaks saksóknara en aldrei hefur fengist staðfest hvort mál Heiðars hafi verið þar á meðal.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?