Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands, segist skilja að það trufli óbreytta borgara að lögmenn og dómarar í sakamálum eigi í nánum samskiptum utan vinnunnar.
Vefmiðilinn Eyjan ræddi við hann um málið í lok síðustu viku kjölfarið á umfjöllun DV um að Benedikt Bogason hæstaréttardómari og Karl Axelsson, lögmaður Baldurs Guðlaugssonar, hefðu farið saman í bíó um það leyti sem mál Baldurs var flutt í Hæstarétti í síðasta mánuði. Benedikt er einn af dómurunum í máli Baldurs.
Brynjar telur að slík samskipti á milli dómara og lögmanna séu ekki óeðlileg í fámennissamfélaginu á Íslandi og að þau leiði ekki ein og sér til vanhæfis. „En ég get samt alveg skilið að þetta trufli marga,“ sagði Brynjar. Þetta er sennileg greining hjá Brynjari.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Kaldur hrollur
Náhirð með Ara
Ríkisstyrkt flopp
Davíð snupraður
Eldhuginn hjá Gunnvöru
