ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Fulltrúar kvenna

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:00 › 24. janúar 2012

Félag Kvenna í Atvinnurekstri hefur háleit markmið á borð við að „auka sýnileika og tækifæri kvenna í viðskiptalífinu, og einnig að stuðla að virðingu og verðskuldaðri athygli samfélagsins á framlagi fyrirtækja sem rekin eru af konum“.

Forsprakkar félagsins hafa vakið „verðskuldaða athygli“ í viðskiptalífinu. Formaður félagsins er Hafdís Jónsdóttir í World Class, en hún og eiginmaður hennar settu rekstur þess í þrot og keyptu síðan eignir þess á slikk og reka það áfram á nýrri kennitölu. Varaformaðurinn er síðan Svava Johansen sem rekur hið ofurskuldsetta NTC tískuverslunarfyrirtæki. Utan hins skuldsetta NTC rekur hún svo fataverslanir á tveimur öðrum kennitölum.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?