ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Ármann tilbúinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:30 › 20. janúar 2012

Sprenging meirihlutans í Kópavogi kom flatt upp á Guðríði Arnardóttur, leiðtoga Samfylkingar, sem hélt að sambúðin við Hjálmar Hjálmarsson og Næstbesta flokkinn væri með miklum ágætum. Á hægrivængnum bíða menn spenntir undir forystu Ármanns Kr. Ólafssonar sem er tilbúinn í að stýra nýjum meirihluta. Ármann sló Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóra, út af borðinu í prófkjöri en nú er fullyrt að sættir hafi tekist með þeim og báðir séu tilbúnir að leiða Kópavog til móts við nýja tíma.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?