Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Nokkrar áhyggjur eru vegna vefmiðlaveldis Björns Inga Hrafnssonar sem virðist vera að koðna niður. Eftir því er tekið að Karl Th. Birgisson, ritstjóri Eyjunnar, uppfærir vefinn sjaldan og yfirleitt seint að morgni. Þá er helsti skjaldsveinn Björns Inga, Eiríkur Jónsson, farinn í fússi. Loks er umsjónarmaður Veraldarinnar á Pressunni, Kidda Svarfdal, einnig hætt en hún hafði átt frábæra spretti. Þetta gerist í framhaldi þess að Steingrímur Sævarr Ólafsson ritstjóri birti mynd af stúlkunni sem kærði Gillz og hatursbylgja skall á miðlunum.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Náhirð með Ara
Ríkisstyrkt flopp
Davíð snupraður
Eldhuginn hjá Gunnvöru
Dylgjað um Döllu
