ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Árni safnar liði

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:17 › 16. janúar 2012

Stuðningsmenn Árna Páls Árnasonar, sem Jóhanna Sigurðardóttir rak úr ríkisstjórn, safna nú liði fyrir flokksstjórnarfund í Samfylkingunni þar sem tekist verður á um tillögu þeirra um aukalandsfund í vor til að kjósa nýja forystu. Stuðningur hans hefur einkum verið í Kraganum, aðallega í Kópavogi, en ákveðið hefur verið að víkka slaginn út bæði til Reykjavíkur og á landsbyggðina. Þá mun ákveðið að boða til fundar með Árna Páli og mögulegum áhugamönnum um framboð hans í Reykjavík á næstunni.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?