ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Náhirðin vill Steingrím

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:58 › 27. mars 2011

Í löngu viðtali á ÍNN kom vel fram hjá Styrmi Gunnarssyni, sem er innmúraður í náhirð Davíðs Oddssonar, að hann dreymir um kosningar og að Sjálfstæðisflokkurinn að þeim loknum myndi ríkisstjórn með VG. Margir Sjálfstæðismenn lásu úr orðum hans að planið væri að gera Steingrím J. Sigfússon að forsætisráðherra í slíkri stjórn, enda sagði Styrmir að lítið bæri á milli nema hvað væri smávegis ágreiningur um orku- og virkjanamál.

Rifja gamlir stuðningsmenn Geirs H. Haarde upp að það var einmitt Styrmir sem kom á flot hugmyndinni um Landsdóm sem Davíð Oddsson gerði að frægri forsíðufrétt og með því sló náhirðin tóninn gegn Geir. Þannig var búin til öflug smjörklípa sem þjónaði þeim tilgangi að koma sökinni af hruninu yfir á Geir og fela hlut hrunkóngsins Davíðs, sem einkavinavæddi bankana, skildi Seðlabankann eftir með 170 milljarða gjaldþrot og ófáir telja frægt Kastljósviðtal við Davíð í hruninu eiga sinn þátt í Icesave-skuldinni.

VG var svo flokkurinn sem beitti sér harðast fyrir landsdómi á Alþingi. Gamlir flokksmenn, sem mörgum finnst Geir illa leikinn, eru því æfir yfir því að náhirðin vilji verðlauna Steingrím fyrir að koma Geir fyrir Landsdóm með því að gera hann að forsætisráðherra með stuðngi Sjálfstæðisflokksins.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?