ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Þorsteinn bestur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:05 › 2. júlí 2010

Besti kosturinn sem oddviti nýs hægriflokks er af mörgum talinn vera Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, sem er sannfærður Evrópusinni.

Þorsteinn var á fundi Evrópusinna fyrr í vikunni en gaf það út að hann teldi ólíklegt að flokkurinn myndi klofna vegna málsins. Þeir sem til þekkja telja að sú skoðun hans ráðist af því að hann vilji ekki leggja undir að vera þekktur fyrir að hafa stýrt Sjálfstæðisflokknum án brotlendingar.

Þetta kann þó að breytast ef nýr flokkur verður stofnaður. Þá kann svo að fara að fremstir í fylkingu standi þeir fornu fjendur Davíð Oddsson og Þorsteinn. En talið er að Davíð hafi ráðið því að harðlínustefnan gegn ESB varð ofan á.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?