ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Sjóðheit Þorgerður

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:56 › 2. júlí 2010

Sjálfstæðismenn hafa af því miklar og rökréttar áhyggjur að klofningur blasi við í framhaldi af því að Evrópusinnar voru reknir út á gaddinn með landsfundarsamþykkt um að aðildarviðræðum við ESB skyldi þegar í stað hætt.

Á fundi Evrópusinna innan flokksins mátti sjá þingkonurnar Ragnheiði Ríkharðsdóttur og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur þungbúnar vegna stöðunnar. Ekki er talið ólíklegt að báðar muni þær ganga til liðs við nýtt, frjálslynt stjórnmálaafl ef til kemur.

Ragnheiður þykir vera ólíkindatól og til alls vís. Þorgerður Katrín hefur aftur á móti engu að tapa innan Sjálfstæðisflokksins þar sem frami hennar er á enda. Hermt er að hún sé sjóðheit fyrir því að komast í oddvitastöðu hjá nýju hægraafli.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?