Hagræðing aldarinnar

Mörgum þykir Guðmundur Ólafsson hagfræðingur vera djarfur og frumlegur hugsuður. Hann hefur nú í spjalli á RÚV boðið þjóðinni að taka við stöðu seðlabankastjóra fyrir 900 þúsund krónur á mánuði en það eru um það bil mánaðarlaun forsætisráðherra.

Við það sparast um 400 þúsund krónur á mánuði miðað við laun Más Guðmundssonar seðlabankastjóra. Fái Guðmundur vinnuna ætlar hann að sjá til þess að krónunni verði skipt út fyrir dollar og Seðlabankinn verði lagður niður. Við það hverfi verðtryggingarvandinn, vaxtafárið og óstöðugleiki vegna gengisbreytinga eins og dögg fyrir sólu.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.