ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 9m/s S

Arftaki Óskars

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:13 › 13. maí 2010

Stirt var orðið milli fréttastofu Stöðvar 2 og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, áður en Óskar Hrafn Þorvaldsson fréttastjóri hætti störfum. Þetta mátti glöggt sjá í fréttatíma stöðvarinnar á mánudagskvöld.

Korteri áður en fréttatíminn hófst var Pressan.is með einkaviðtal við Jón Ásgeir um kröfur skattstjóra, en hann neitaði samt að tala við Stöð 2. Þar er talið að Steingrímur Sævarr Ólafsson, ritstjóri Pressunnar, hafi stýrt penna.

Jón Ásgeir hafi hringt í hann til að koma höggi á eigin fréttastofu. Nú er því spáð að Steingrímur Sævarr snúi aftur á Stöð 2 sem arftaki Óskars, að umþóttunartíma liðnum.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?