ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Hvítþvottur Bjögganna

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:52 › 9. mars 2010

Feðgarnir Björgólfur Thor og Björgólfur Guðmundsson sendu frá sér yfirlýsingu í dag vegna gamallar umræðu um skuldir þeirra við Búnaðarbankann vegna láns sem tekið var til að greiða fyrir hluta af verði Landsbankans.

Segja feðgarnir nú að félag þeirra, Samson, hafi gert upp lánið árið 2005. Þá er tilgreint að Samson hafi að vísu fengið sama ár lán að upphæð 3,5 milljarðar króna sem var á gjalddaga þremur árum síðar. Það lán tengdist auðvitað ekki hinu fyrra og var til ,,ýmissa annarra fjárfestinga". Þessa skýringu hafa mbl.is og fleiri fjölmiðlar gleypt hráa. Einhver bloggari benti á að þetta væri dæmigerður hvítþvottur.

Arion-banki, áður Kaupþing og þar áður Búnaðarbankinn, er nú að reyna að innheimta skuldina sem er með sjálfskuldarábyrgð feðganna. Hún stendur nú í fimm milljörðum króna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.