ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Flekklaus með olíubletti

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:40 › 9. mars 2010

Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Landsbankans, á aðeins eftir nokkrar vikur eftir í starfi. Það líður því að því að nýr bankastjóri verði ráðinn. Þar er haft til hliðsjónar að viðkomandi sé karlmaður sem kominn er yfir fimmtugt, óumdeildur, og hafi mikla reynslu úr heimi viðskipta og fjármála. Meðal þeirra sem nefndir eru til sögu er Þórólfur Árnason, sem er flekklaus að undanskildum nokkrum olíublettum sem loða við hann vegna þátttöku í olíusamráðinu á sínum tíma. Sigurbjörn Þorkelsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Lehman Brothers er einnig nefndur til sögu. Sigurbjörn þykir vera einstaklega hæfur fjármálamaður. Óvíst er þó að hann fáist til starfans þar sem hann var að taka við nýju starfi í Hong Kong.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.