Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Björn Valur Gíslason, alþingismaður VG, lenti í nokkuð kröppum sjó eftir að hann bloggaði um að sjálfstæðismenn væru gjarnan kallaðir til sem óháðir álitsgjafar. Nefndi hann þar sérstaklega Ólaf Arnarson, Ólaf Ísleifsson og Stefaníu Óskarsdóttur. Heimir Karlsson í Býtinu á Bylgjunni var ókátur með bloggið og tók símaviðtal við þingmanninn þar sem hann benti á að nafnarnir væru fyrir löngu gengnir af trúnni. Björn Valur var hinn vandræðalegasti en hélt sig þó við að það þyrfti að hemja fjölda fornra sjálfstæðismanna í umræðunni.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Gæðingar Egils
Dýrmæt dóttir
Þrídæmdur
Póstur á vergangi
Björn Ingi frímúrari