ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Bíddu bara, Bjarni

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:00 › 8. mars 2010

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, tókst hraustlega á við Steingrím J. Sigfússon í Silfri Egils þar sem fjallað var um lífslíkur ríkisstjórnarinnar.

Steingrímur reiddist mjög og sagði Bjarna að hann skyldi bara bíða þar til skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis kæmi í næstu viku. Í orðum fjármálaráðherra fólst að Sjálfstæðisflokkurinn yrði fyrir reiðarslagi þar. Hvíslað er um að meðal þess sem fjallað sé um í skýrslunni sé Vafningsmálið þar sem Bjarni kemur við sögu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.