Skólaður hjá Bechtel

Eyjubloggarinn Björn S. Lárusson fer fyrir óánægjuframboði til stjórnar VR. Björn hefur komið víða við.

Hann var áður yfirmaður samskiptamála hjá hinu umdeilda verktakafyrirtæki Bechtel sem byggði álverið á Reyðarfirði. Björn er viðskiptafræðimenntaður og hafði verið virkur í starfi Framsóknarflokksins áður en hann hlaut starfið við álversframkvæmdirnar fyrir austan.

Björn er ötull bloggari og lætur gjarnan mikið í sér heyra. Hann virðist hins vegar orðinn afhuga kynningarstörfum fyrir erlenda auðhringi og vill sæti í stjórn stærsta verkalýðsfélags landsins. Sannarlega jákvæð sinnaskipti þar.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.