ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Þingið treystir ekki fjölmiðlum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:14 › 16. mars 2010

Senn verður birt skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis í níu bindum. Eðlilega búa fjölmiðlar sig undir að fjalla um efni skýrslunnar á ítarlegan og aðgengilegan hátt, vinsa út aðalatriðin og sýna samhengi hlutanna. Þannig ætlar til að mynda Sjónvarpið að leggja tvær klukkustundir undir skýrsluna í fyrstu atrennu.

Einn möguleiki fjölmiðlanna hefði verið að fá aðgang að skýrslunni gegn loforði um að sleppa engu út fyrr en nefndin og forsætisnefnd Alþingis heimilaði slíkt. Þetta er algengt í heimi fjölmiðlanna víða um heim, "Embargo" svokallað. Þannig hefðu fjölmiðlarnir fengið ráðrúm til þess að átta sig á öllu efninu, setja í samhengi og matreiða. Sá fjölmiðill sem ekki virðir "embargo" missir trúnað viðkomandi og fær ekki að vera með í framhaldinu. -
Sagan segir að rannsóknarnefndin hafi verið til í að hafa þennan hátt á en forsætisnefnd Alþingis harðneitað.
Hverjir treysta ekki fjölmiðlum?



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.