ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE

Eyþór bæjarstjóraefni

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:19 › 15. mars 2010

Eyþór Arnalds má glaður una við yfirburðasigur sinn í prófkjöri sjálfstæðismanna í Árborg. Fyrir síðustu kosningar glansaði hann einnig inn en dró sig í hlé sem oddviti eftir frægt mál og talaði hjarta sitt hreint.

Nú hafa kjósendur veitt honum nýtt og sterkt umboð og fortíðin er að baki. Mikið verk er fyrir höndum í Árborg þar sem skuldir sliga íbúana eftir óheppilega fjármálastjórn undanfarin ár.

Ekki er ólíklegt að Eyþór gæti orðið bæjarstjóri eftir kosningar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.