Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Auglýsing frá starfsmannafélagi Arion banka hefur gengið manna á milli á netinu og vakið kátínu. Verið er að auglýsa árshátíð félagsins sem fram fer á næstunni. Í auglýsingunni er farið yfir matseðil kvöldsins sem er hefðbundinn með tilheyrandi risarækjum, nautalund, trufflumeðlæti og einhvers konar desertmús.
Það sem vekur athygli við auglýsinguna er hins vegar ekki maturinn heldur drykkjarföngin sem í boði eru: Tekið er fram að með matnum sé boðið upp á 3 glös af víni. Einhverjir hafa haft orð á því að þessi vínglasaskömmtun sýni betur en margt annað að það er af sem áður var í bönkunum: Nú sé farið að telja víndropana ofan í starfsmennina.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Gæðingar Egils
Dýrmæt dóttir
Þrídæmdur
Póstur á vergangi
Björn Ingi frímúrari