ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Skotið á Hannes

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
00:10 › 14. mars 2010

Áhrif skattahækkana á hagvöxt og lífskjör heitir nýjasta bók Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar. Þar skoðar hann skattamál og metur reynsluna af skattalækkunum. Laffer-kúrfan er í lykilhlutverki á kápu bókarinnar og ljóst að Hannes er mjög sannfærður um ágæti þeirrar kenningar.

Örfáum dögum áður en bókin kom út skrifaði flokksbróðir hans, Deiglupenninn og hagfræðineminnn Hafsteinn Gunnar Hauksson, pistil og taldi kenninguna ofmetna. „Stóri feill okkar hægrimanna felst hins vegar ekki í því að tala fyrir kenningu sem gengur misvel upp, heldur í því að halda að hún skipti einhverju höfuðmáli.“

Pistlinum virðist beint til höfuðs Hannesi enda vísað í kápuskreytingu íslensks fræðimanns „af hægri vængnum“.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.