ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Lík í lestinni

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:38 › 14. mars 2010

Benedikt Erlingsson leikari vakti mikla athygli fyrir ræðu þegar hann tók við Menningarverðlaunum DV í leiklist fyrir Jesúm litla ásamt félögum sínum Halldóru Geirharðsdóttur og Bergi Þór Ingólfssyni.

Benedikt vakti kátínu þegar hann sagði erfitt að taka við verðlaunum úr hendi gagnrýnanda því að með því væri hann að viðurkenna vald gagnrýnandans. Öllu meiri athygli vakti þó hörð gagnrýni hans á Reyni Traustason, ritstjóra DV.

Benedikt sagðist vilja feta í fótspor Jesú litla og velta um borðum í musterinu, það gerði hann best með því að benda á smákónga sem væri nóg af í samfélaginu. Einn þeirra væri Reynir sem hann skammaði fyrir atlögu að heiðri blaðamannsins Jóns Bjarka Magnússonar þegar sá hætti á DV skömmu fyrir jól 2008 og greindi frá samtölum þeirra um hótanir í garð DV og frétt sem ekki birtist.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.