Ólafur Stephensen vann nokkuð afrek þegar hann réði Halldór Baldursson skopmyndateiknara af Morgunblaðinu yfir á Fréttablaðið.
Frægt varð á sínum tíma þegar hinn þá nýráðni ritstjóri Morgunblaðsins réði Halldór á blaðið en þá hafði Halldór teiknað í Blaðið/24 stundir og Viðskiptablaðið um nokkurra ára skeið.
Færri vita hins vegar að áður hafði Fréttablaðið gert atlögu að því að fá Baldur til liðs við sig. Þá fannst honum hins vegar best að vera áfram á Blaðinu og það þó fjárhagslegur ávinningur hans hefði ef til vill verið meiri af því að skipta um vinnustað. En nú verður sem sagt gamall draumur Fréttablaðsmanna að veruleika.
Vistaskipti Halldórs Baldurssonar teiknara vekja athygli enda hafa myndir hans löngum verið það besta sem íslenskir fjölmiðlar hafa upp á að bjóða þegar kemur að skopteikningum. Nú bregður hins vegar svo við að fyrir er á fleti á Fréttablaðinu Gunnar Karlsson sem hefur boðið upp á Skopið, spurning hvort hann þurfi ekki að víkja núna. Annars setur þetta tilnefningar til Blaðamannaverðlauna Íslands í nýtt samhengi. Þar voru þeir Halldór og Gunnar nefnilega tilnefndir saman í flokknum blaðamannaverðlaun ársins, þrátt fyrir að vera á sitt hvorum miðlinum og því í raun í samkeppni hvor við annan.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Gæðingar Egils
Dýrmæt dóttir
Þrídæmdur
Póstur á vergangi
Björn Ingi frímúrari