ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Náhvítir forstjórar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:44 › 13. mars 2010

Símalínur í viðskiptalífinu hafa logað síðustu daga. Taugaveiklunin hófst undir lok vikunnar, en forstjórar og forsvarsmenn helstu fjármögnunarfyrirtækja landsins áttu fund í félagsmálaráðuneytinu á fimmtudag. Að sögn kunnugra munu þeir hafa verið náhvítir í framan þegar þeir sneru aftur á skrifstofur sínar.
Sú frétt fór í kjölfarið sem eldur í sinu um bankakerfið að eignaleigufyrirtækjunum hefði lent harkalega saman við ráðherrann og að þeir óttuðust að Árni Páll Árnason ætli sér að keyra fyrirtækin í þrot. Einhverjir voru þó vantrúaðir, enda hefur ríkisstjórnin hingað til lagt áherslu á samráð við fjármálastofnanir um aðgerðir fyrir skuldara. Forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag mun hins vegar hafa sannfært menn um að full alvara fylgi hótunum ráðherrans. Árni ætli sér að beita lögum til að ná fram niðurfellingum á bílalánum almennings. Áætlanir erlendra banka um að ná til baka lánum sínum til 50.000 íslenskra bíleigenda séu því komnar í algjört uppnám.
Ráðherrann stefnhir aftur á móti í það að verað besti vinur skuldugra bíleigenda.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.