ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

„Er ég útrásarvíkingur?“

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:32 › 13. mars 2010

Verðlaunahafinn í bókmenntum, Kristján Árnason rithöfundur, hélt ræðu eftir að hann hafði tekið við verðlaunum sínum á menningarverðlaunum DV. Sagðist hann hafa rekist á mynd af sér í síðasta helgarblaði DV.

Lýsti hann því að honum hefði krossbrugðið þar sem það hefði flögrað eitt andartak að honum að hann væri orðinn útrásarvíkingur. Sér til léttis hefði hann síðan uppgötvað að hann hefði verið útnefndur til verðlauna vegna þýðingar sinnar á Ummyndunum Óvíds.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.