Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Meðal þeirra sem taka þátt í fokdýrri auglýsingaherferð gegn fyrningarleiðinni er auðkonan Guðbjörg Matthíasdóttir sem lætur Ísfélagið kosta hluta af auglýsingunum. Guðbjörgu munar reyndar lítið um að taka þátt í slíku.
Meiri kostnaður er af því að kaupa heilt málgagn, Morgunblaðið, og niðurgreiða um tugi milljóna króna á mánuði til að koma fram boðskap sínum. Egill Helgason sjónvarpsmaður gerir þetta að umtalsefni á bloggi sínu: „Ég vitna aftur í hin fleygu orð Napóleons: Menn berjast af meiri hörku fyrir hagsmunum sínum en hugsjónum.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Gæðingar Egils
Dýrmæt dóttir
Þrídæmdur
Póstur á vergangi
Björn Ingi frímúrari