ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.3° 2m/s E

Ögmundur inn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:30 › 12. mars 2010

Eins og greint var frá í Sandkorni fyrir nokkru er allt kapp lagt á að taka Ögmund Jónasson, alþingismann VG, aftur inn í ríkisstjórnina og tryggja þannig frið. Hermt er að hann vilji verða heilbrigðisráðherra aftur.

En kálið er ekki sopið þótt í ausuna sé komið. Hvorki Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra né Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra mega til þess hugsa að Ögmundur snúi aftur. Þær stöllur tilheyra Steingrímsarminum. Því er jafnvel spáð að þær geri uppreisn ef til þess kæmi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.