ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Húmor í Hádegismóum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:36 › 11. mars 2010

Ritsnilld Davíðs Oddssonar og afar sérstæður húmor kemur vel fram í leiðurum og sérstaklega Staksteinum Moggans. Í gær for gamli formaðurinn á kostum í enn einni umfjöllun sinni um stjórnarliða og þá dauðans sök að hafa ekki kosið.

Greip stílsnillingurinn til samlíkingar við knattspyrnufélag á Skaganum. ,,... svolítið eins og fyrirliði ÍA neitaði að gefa upp hvort hann styddi ÍA," segir Davíð af innlifun í Staksteinum og geislandi húmorinn í Hádegismóum sindrar eins og silfur í sólskini.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.